013 – Pælingar um kvennalandsliðið og verkefnin framundan

Framundan eru stærstu leikir íslenska kvennalandsliðsins í sögu þess, úrslitaleikir um að komast á HM í Frakklandi á næsta ári. Við skelltum því í gott upphitunar-pepp-pælinga-podcast. Ertu ekki örugglega búin/n að ná þér í miða á völlinn?

Þátttakendur í þessum þætti voru Halldór gameday, Ósi kóngur og svo sérstakur gestur, hann Orri Rafn Sigurðarson en hann er knattspyrnublaðamaður og mikill sérfræðingur um kvennafótbolta.

Hér eru leiðbeiningar um hvar og hvernig hægt er að hlusta á podcast Tólfunnar.

Minnum á netfangið okkar, sendið póst á [email protected] ef þið viljið koma einhverju sniðugu á framfæri.

Special thanks to our friends from the Tartan Specials for allowing us to use their song in our intro.

Sérstakt shoutout á snillingana í Tónastöðinni fyrir hjálp með hljóðfæra- og græjumál.